Viðbragðsáætlun Laugalandsskóla vegna COVID-19
Sem kunnugt er hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19).
Laugalandsskóli hefur uppfært sína viðbragðsáætlun sem er að finna hér á heimasíðu skólans. Þessi viðbragðsáætlun á að þjóna þeim tilgangi að vera stjórnendum skólans til stuðnings um það hvernig takast eigi á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og/eða eignum.
Áætlun þessi gildir fyrir skólann. Ábyrgð á viðbragðsáætlun er á höndum skólastjóra
Viðbragðsáætlun þessi hefur þegar verið virkjuð og viðbragðsteymi skólans hefur tekið til starfa.
Hér er slóð á viðbragðsáætlun skólans.
Hér er slóð á viðbragðsáætlun sveitarfélagsins