
Lýsing:
Nemendaráð vinnur að því að efla rödd nemenda í skólasamfélaginu og stuðla að jákvæðum skólabrag.
Kennslutilhögun:
Fundir eru haldnir þar sem nemendur ræða málefni skólans, skipuleggja viðburði og koma hugmyndum sínum á framfæri.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, ábyrgð, frumkvæði og þátttöku í störfum ráðsins.
Aðrar upplýsingar: Einungis í boði fyrir þá sem bjóða sig fram og eru kosnir inn í nemendaráð af samnemendum á unglingastigi.
Virkt allt árið
Lýsing:
Langar þig að skapa eitthvað einstakt fyrir jólin? Í þessu vali vinnum við með ferskan efnivið úr nærumhverfinu og búum til jólaskraut og aðra jólalega muni.
Kennslutilhögun:
Nemendur læra undirstöðuatriði í tálgun, notkun verkfæra og örugg vinnubrögð. Unnið er að einstaklingsverkefnum þar sem sköpun og handverk fá að njóta sín.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, vinnubrögð, öryggisvitund og frágang verkefna.
Er í boði á miðönn

Lýsing:
Finnst þér gaman að baka og prófa eitthvað nýtt í eldhúsinu? Við vinnum með fjölbreyttar uppskriftir og búum til ljúffengar kökur og bakkelsi.
Kennslutilhögun:
Nemendur fylgja uppskriftum, læra mismunandi aðferðir við bakstur og vinna saman að undirbúningi, framkvæmd og frágangi.
Námsmat:
Lagt er mat á þátttöku, samvinnu, ábyrgð og vinnubrögð í eldhúsi.
Er í boði á miðönn


Lýsing:
Langar þig að ögra sjálfum þér og bæta styrk og þol? Í þessu vali reynum við á styrk, úthald, snerpu og liðleika með fjölbreyttum æfingum.
Kennslutilhögun:
Kennd verða undirstöðuatriði í skólahreystigreinum: Upphífingum, dýfum, armbeygjum, hreystigreip og hraðaþraut. Nemendur taka þátt í æfingum og leikjum sem byggja upp líkamlega færni og sjálfstraust. Ef vilji er fyrir hendi gefst hópnum kostur á að taka þátt í stóru Skólahreystikeppninni.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, þátttöku og bætingu nemenda sem og vilja þeirra til að vinna saman í hóp til þess að skólahreystiliðið nái árangri. Einn fyrir alla, allir fyrir einn
Er í boði á miðönn
Kennslutilhögun: Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, færni og hæfni í málmsmíði. Þeir læri að takast á við þau viðfangsefni sem málmsmiðir inna af hendi s.s. nýsmíði og viðhald úr mismunandi gerðum málmplatna, stangarefnis og rörum. Helstu verkfæri eru: Málband, gráðubogi, sirkill, beygjuvél, slípirokkur, standborvél, rafsuðutæki (bæði rúlluvél og pinnavél).
Námið er verkefnatengt, bæði skylduverkefni og síðan fá nemendur að velja sér verkefni.
Námsmat: Lagt er mat á virkni og þátttöku nemenda. Vinnubrögð þeirra við verkefni metin sem og vilja þeirra til að fara eftir fyrirmælum og leiðbeiningum
Er í boði á miðönn


Lýsing:
Langar þig að kynnast því hvernig er að starfa á leikskóla? Í leikskólavali fá nemendur tækifæri til að taka þátt í daglegu starfi leikskólans á Laugalandi, kynnast yngri börnum og fá innsýn í fjölbreytt og gefandi starf með börnum.
Kennslutilhögun:
Nemendur taka þátt í daglegum verkefnum leikskólans undir leiðsögn starfsfólks. Þeir aðstoða við leik, lestur, skapandi starf, útiveru og önnur verkefni sem falla til í leikskólastarfinu. Einnig fá nemendur tækifæri til að kynna sér hlutverk starfsfólks leikskóla og þær kröfur sem gerðar eru í starfi með börnum.
Námsmat:
Lagt er mat á ástundun, ábyrgð, frumkvæði, samskipti við börn og starfsfólk, ásamt jákvæðri þátttöku í daglegu starfi leikskólans.
Er í boði á miðönn
Lýsing:
Hefurðu áhuga á fréttum, ljósmyndun, myndböndum eða samfélagsmiðlum? Í þessu vali skoðum við hvernig efni verður til og hvernig fjölmiðlar hafa áhrif á okkur.
Kennslutilhögun:
Nemendur vinna með fjölbreytt miðlunarverkefni, svo sem myndir, myndbönd, viðtöl og fréttaskrif. Áhersla er lögð á sköpun, gagnrýna hugsun og ábyrga miðlun.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, þátttöku, frumkvæði og skil á verkefnum.
Er í boði á miðönn


Lýsing:
Kanntu að prjóna og langar að búa til eigin lopapeysu? Í þessu vali vinnum við með íslenskan lopa, æfum prjónatækni og kynnumst mismunandi mynstrum.
Kennslutilhögun:
Nemendur vinna að eigin verkefni með leiðsögn kennara. Lögð er áhersla á að lesa uppskriftir, fylgja mynstrum og tileinka sér vönduð vinnubrögð.
Námsmat:
Lagt er mat á þátttöku, vinnusemi, framfarir og vönduð vinnubrögð.
Er í boði á miðönn
Lýsing:
Í þessu vali lærum við að hnýta flugur sem notaðar eru við veiðar og kynnumst handverkinu á bak við þær. Einnig gefst tími til að spila og eiga notalega stund saman.
Kennslutilhögun:
Nemendur fá leiðsögn í helstu aðferðum fluguhnýtinga og vinna að eigin flugum. Jafnframt verður tími fyrir spil og félagslega samveru.
Námsmat:
Lagt er mat á þátttöku, vinnubrögð, nákvæmni og virkni í verkefnum.
Er í boði á miðönn


Lýsing:
Hefurðu gaman af spilum, keppni og/eða bara góðri samveru? Í þessu vali prófum við fjölbreytt borðspil , lærum reglur, þjálfum taktíska hugsun og höfum gaman saman.
Kennslutilhögun:
Nemendur kynnast fjölbreyttum spilum, læra reglur og taka þátt í spilamennsku þar sem lögð er áhersla á skemmtun, samvinnu og heilbrigða keppni.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, þátttöku, samvinnu og virðingu fyrir reglum og samnemendum.
Er í boði á miðönn
Lýsing:
Viltu fá meiri tíma til að sinna náminu? Þetta val er fyrir nemendur sem vilja vinna heimanám, ljúka verkefnum eða fá stuðning við námið í rólegu umhverfi.
Kennslutilhögun:
Nemendur vinna sjálfstætt eða með stuðningi kennara að þeim verkefnum sem liggja fyrir. Áhersla er lögð á skipulag, ábyrgð og góð vinnubrögð.
Námsmat:
Lagt er mat á ástundun, vinnusemi, sjálfstæði og nýtingu tíma.
Er í boði á miðönn


Lýsing:
Hefurðu gaman af spilum og langar að læra ný? Í þessu vali kynnumst við klassískum spilum sem spiluð eru með hefðbundnum spilastokk. Við lærum reglur, prófum mismunandi spil og eigum skemmtilegar stundir saman.
Kennslutilhögun:
Nemendur læra reglur fjölbreyttra spila, æfa sig í spilamennsku og takast á við skemmtilegar áskoranir sem reyna á röksemdafærslu, einbeitingu og samvinnu. Einnig kann að gefast kostur á námsferð tengdri valinu.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, þátttöku, samvinnu og virðingu fyrir reglum og samnemendum.
Er í boði á miðönn
Leir – Sunneva
Lýsing:
Langar þig að skapa eitthvað með höndunum? Í þessu vali vinnum við með leir, mótum eigin hugmyndir og prófum mismunandi aðferðir við leirvinnu.
Kennslutilhögun:
Nemendur læra grunnatriði í leirmótun og vinna bæði nytja- og skrauthluti. Áhersla er lögð á sköpun, tilraunir og persónulega útfærslu.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, vinnubrögð, sköpun og framvindu verkefna.
Er í boði á miðönn


Lýsing:
Hefurðu áhuga á hestum og öllu sem þeim tengist? Í þessu vali kynnumst við íslenska hestinum, umhirðu hans, búnaði og reiðmennsku.
Kennslutilhögun:
Nemendur fræðast um flestar hliðar hestamennsku. Teknar verða umræður og unnið með verkefni allt frá umhirðu og að gæðingadómum. Umræður, verkefni og miðlun reynslu og þekkingar.
Námsmat:
Lagt er mat á þátttöku, virkni, verkefnaskil, áhuga og vinnubrögð.
Er í boði á miðönn
Lýsing:
Fyrir alla sem hafa áhuga á fótbolta! Í þessu vali spilum við saman, æfum færni okkar og lærum meira um íþróttina. Við fylgjumst einnig með því sem er að gerast í fótboltaheiminum, ræðum lið, leikmenn og helstu fréttir úr boltanum.
Kennslutilhögun:
Unnið verður með tækniæfingar, leiki og fjölbreytt verkefni sem tengjast fótbolta. Nemendur æfa sendingar og skot úti þegar veður leyfir en einnig er unnið inni þar sem ma. verður rætt um leiki, leikskilning og gengi í ýmsum deildum.
Námsmat:
Lagt er mat á þátttöku, ástundun, samvinnu og jákvætt viðhorf til verkefna og æfinga.
Í boði á miðönn


Lýsing:
Hefurðu gaman af því að leika, skapa og koma fram? Í leiklist fá nemendur tækifæri til að prófa sig áfram í leik, tjáningu og samvinnu. Leiklistahópurinn tekur þátt í að setja upp sýningu fyrir Litlu jól skólans.
Kennslutilhögun:
Farið er í leiklistar- og spunaleiki þar sem nemendur þjálfast í að tjá sig og setja sig í spor annarra. Nemendur taka þátt í að þróa hugmyndir, skrifa handrit og setja upp leikverk.
Námsmat:
Lagt er mat á virkni, þátttöku, frumkvæði og samstarf í verkefnum.
Er í boði á miðönn
Kennslutilhögun: Í fjármálalæsi læra nemendur um það helsta sem tengist fjármálum. Lesa á launaseðla, læra um skattþrepin, fá kynningu um helstu bankareikninga og margt fleira. Einnig fá nemendur heimsóknir frá mismunandi fólki sem kynnir starf sitt og menntun.
Námsmat: Virkni og þátttaka í kennslustundum
Er í boði á miðönn

Kennslutilhögun: Markmið borðtennisvalsins er fyrst og fremst að hafa gaman! Krakkarnir læra grunntækni í borðtennis og fá einstaklings æfingar með þjálfara. Þess á milli þess sem þeir spila við hvort annað.
Námsmat: Virkni og þátttaka í tímum.
Annað:
Ekki í boði á miðönn


Kennslutilhögun: Hugguleg stund þar sem nemendur horfa á ýmsar bíómyndir.
Námsmat: Virkni, tillitssemi og þátttaka í kennslustundum
Annað:
Er í boði á miðönn 2025-2026
Kennslutilhögun: Í textílvali er unnið eftir áhuga og getu hvers og eins. Verkefnin eru misjöfn og geta t.d. verið: vélsaumur/fatasaumur, prjón, hekl, útsaumur o.fl.
Námsmat: Virkni og þátttaka í tímum
Annað:
Er í boði á miðönn


Kennslutilhögun: Nemendur taka virkan þátt í dagskólanum með því að hjálpa nemendum í 1.-4. bekk með verkefni, leiki, spil og annað sem er í boði hverju sinni.
Námsmat: Lagt er mat á virkni og þátttöku nemenda.
Annað:
Ekki í boði á miðönn
Efla áhuga á tónlist og áhuga á að spila á hljóðfæri og syngja. Lagt áherslu á að nemendur sýni frumkvæði við að finna lög sem þeir vilja spila.
Þjálfa nemendur í hvernig á að finna út hvernig á að læra og spila lögin og svo í framhaldinu æfa þau saman með hljómsveitinni.
Námsmat: Lagt er mat á virkni og þátttöku nemenda sem og vilja þeirra til að læra lög og æfa þau með hljomsveitinni.
Ekki í boði á miðönn


Kennslutilhögun: Nemendur hittast einu sinni í viku með Steinunni. Í snyrtifræði læra nemendur um húðumhirðu og mikilvægi hennar, einnig fá þau kynningu á mismunandi förðunum og læra um starfið sjálft og námið.
Námsmat: Nemendur eru metnir út frá virkni í tímum.
Annað:
Ekki í boði á miðönn

Farið í undistöðu atriði skáklistarinnar.
Farið er yfir mannganginn, hvernig best er að verðmeta taflmennina (t.d. hvernig staðan er á borðinu).
Farið er yfir byrjanir, taktík og endatöfl.
Námsmat: Lagt er mat á virkni og þátttöku nemenda.
Ekki í boði á miðönn
Kennslutilhögun: Framandi matargerð byggist upp á að elda framandi rétti og bakkelsi en fyrst og fremst að vinna að sjálfstæði í eldhúsinu. Almenn þrif, lestur á uppskrift og sjá leiðbeiningar, finna það efni sem vantar, og rækta sína hæfileika í eldhúsinu.
Námsmat: Geta:
Ekki í boði á miðönn


Lagt áherslu á að nemendur hafi ánægjulega upplifun af því að stunda íþróttir og að hópurinn hafi gaman saman. Mikil áherlsa lögð á að stunda þær íþóttagreinar sem flestir hafa gaman að.
Námsmat: Lagt er mat á virkni og þátttöku nemenda.
Ekki í boði á miðönn
Síðan var uppfærð 3. nóvember 2026