Í tilefni síðasta dags fyrir páskafrí héldum við páskaeggjabingó í tvennu lagi. Bingó fyrir fyrir 1. – 5. bekk var fyrir hádegi og fyrir 6. – 10. bekk eftir hádegi.
Bæring stjórnaði bingóinu af stakri prýði. Þetta var góð tilbreyting í annars góðri viku, þar sem nám og starf gengu ljómandi vel.
Hér sjáum við nokkrar myndir af eldri nemendunum.