14. ágúst 2020

Skólabyrjun

Skólasetning Laugalandsskóla verður föstudaginn 21. ágúst kl.10:00. Þá fá nemendur stundaskrá og hitta umsjónarkennara sinn.

Boðaðir eru allir nemendur 2. – 10. bekkjar. Skólabílarnir aka nemendum í skólann og munu leggja aftur af stað frá skólanum klukkan 11:15.

Frá og með mánudeginum 24. ágúst mæta allir í 1. – 10. bekk samkvæmt stundaskrá kl. 8:30.

Skólastjóri

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi
SKÓLAREGLUR