Kæru foreldrar og forráðamenn.
Í ljósi fréttamannafundar ríkisstjórnarinnar áðan, er ljóst að það eru allir nemendur komnir í páskafrí á morgun.
Við verðum í sambandi eftir páska um áframhaldið, þá vitum við líka meira um framvindu Covid og hvernig yfirvöld ætla að haga skólamálum.
Við erum í ljósi aðstæðna mjög ánægð með að hafa haldið árshátíðina okkar sl. föstudag. Af sameiginlegu árshátíðinni sem átti að verða á morgun verður auðvitað ekki og mér sýnist að við náum ekki heldur leikhúsferðinni sem átti að vera miðvikudaginn 7. apríl, en það á auðvitað eftir að skýrast.
Sundkennsla
Við stefnum á sundkennslu strax eftir páska ef opnað verður á það ??
Foreldrar 1. – 4. bekkjar eru velkomnir í skólann á morgun fyrir hádegi til að ná í lestrarbækur og útiföt barnanna ef þið þurfið á þeim að halda um páskana.
B.kv.
Stjórnendur