25. nóvember 2021

Textílmennt

Hún Björg okkar kennir af lífi og sál. Það er dásamlegt að sjá hvað nemendur eru alltaf ánægðir hjá henni í textílmennt og greinilegt er að þeim líður vel í þessum aðstæðum, Það er sama hvaða aldur um er að ræða - alltaf er boðið upp á skapandi og opin verkefni sem heilla hvern sem á horfir. Hér má sjá nemendur í 1. og 2. bekk með skemmtilega veggmynd sem þau gerðu á dögunum.
Eins og Björg segir sjálf - duglegir og frábærir nemendur - öll sem eitt.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi
SKÓLAREGLUR