Mánudaginn síðastliðinn, þann 31. október, var haldið upp á hrekkjavöku í Laugalandsskóla. Nemendur og starfsfólk mættu fjölbreyttum, en yfirleitt ógnvekjandi, búningum. Nemendur í 5. – 10. bekk höfðu búið til draugahús á sameiginlegum gangi allra deilda. Yngri nemendum og elstu leikskólabörnunum var boðið að að fara í gegnum draugahúsið og voru ansi margir hugrakkir krakkar sem prófuðu. Nemendaráðið stóð svo fyrir balli eftir hádegið þar sem var dansað, farið var í leiki og opnuð sjoppa á staðnum . Veitt voru verðlaun fyrir búninga en verðlaunahafar voru sem hér segir:
Besti búningurinn í 1. og 2. bekk: Róbert Máni
Mest ógnvekjandi búningurinn í 1. og 2. bekk: Magnús Helgi
Besti búningurinn í 3. og 4. bekk: Ingibjörg Eva
Mest ógnvekjandi búningurinn í 3. og 4. bekk: Guðmundur Ólafur
Besti búningurinn í 5. og 6. bekk: Ævar Leví
Mest ógnvekjandi búningurinn í 5. og 6. bekk: Laura
Hér má sjá nokkrar myndir frá þessum skemmtilega viðburði.