28. apríl 2023

Fokk me - Fokk you!

Þau Kári Sigurðsson og Andrea Marel sjá um fræðslu um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna sem ber nafnið Fokk me – fokk you. Nemendur í 5.-10. bekk fengu þessa fræðslu um miðjan apríl og kennarar gripu boltann og hafa haldið umræðunni áfram. Fræðslan byggir á margra ára reynslu af starfi með ungu fólki, samtölum við unglinga, fyrirspurnum, reynslusögum og skjáskotum frá unglingum. Fjallað er um veruleika unglinga í tengslum við sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti. Rætt er um þá þætti sem hafa áhrif á mótun sjálfsmyndar á unglingsárunum og mikilvægi virðingar í samskiptum, hvort sem um er að ræða samskipti á netinu eða í eigin persónu. Einnig er komið inn á samþykki og mörk, farið yfir algengar birtingarmyndir neikvæðra samskipta, kynferðislegrar áreitni og ofbeldis á stafrænu formi og bent á leiðir til bregðast við slíku. 
Nú fá foreldrar tækifæri á sömu fræðslu og við hvetjum foreldra til að fjölmenna, málefnið er þarft og mikilvægt að foreldrar geti stutt við bakið á börnum sínum þegar kemur að þessum málum. Þótt þarna sé verið að fjalla um sjálfsmynd á unglings árum teljum við að foreldrar yngri barna hafi einnig gott að þessari fræðslu og eru þeir velkomnir.  Fyrirlesturinn verður haldin í matsal Laugalandsskóla þann 2. maí kl  20:00

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi
SKÓLAREGLUR