Alla föstudagsmorgna syngja nemendur í öllum bekkjum saman undir stjórn Einars Þórs. Þetta er notaleg en jafnframt fjörug stund og gaman að hrista bekkina svona saman. Sú tilbreyting var gerð á fyrirkomulaginu í dag að bjóða elstu deild leikskólans að taka þátt. Úr varð ansi skemmtileg og eftirminnileg söngstund. Myndirnar og myndbandið tala sínu máli.
Góða helgi!