Föstudaginn 23. maí tók 3.-4. bekkur þátt í litlu upplestrarkeppnina hér í Laugalandsskóla. Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn tekur þátt en hún er haldin formlega í 15. sinn í ár. Þar með vorum við fyrsti skólinn á svæðinu til að skrá okkur og taka þátt í verkefninu.
Litla upplestrarkeppnin er undanfari stóru upplestrarkeppninnar sem er fyrir 7. bekk grunnskóla en nemendur okkar hafa náð góðum árangri þar undanfarið. Tinna Lind Brynjólfsdóttir sigraði keppnina nú á dögunum og á síðasta ári náði Hákon Þór Kristinsson 2. sæti. Litla upplestrarkeppnin byggir á sömu hugmyndafræði og Stóra upplestrarkeppnin þar sem markmiðið er að bæta árangur í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu.
Þetta var vegleg sýning hjá krökkunum en aðstandendum var boðið að koma og horfa. Inn á milli upplesturs hjá nemendum 3. og 4. bekkjar komu keppendur Stóru upplestrarkeppninngar (Röddin) og lásu ljóð. Að keppni lokinni fengu allir eplaköku, kex, ávexti og kaffi.
Nemendur hafa unnið að þessu verkefni í vetur og lagt mikla áherslu og vandaðan og fjölbreyttan upplestur. Það er ljóst að sú mikla vinna hefur skilað sér í glæsilegum árangri þar sem allir nemendur hafa tekið miklum framförum í vetur.