15. maí, 2025

Páskagóðverk

Eva Tomis, sem sér um frístund, stóð fyrir skemmtilegu verkefni rétt fyrir páskafrí. Hún bauð nemendum að búa til póstkort til að senda þeim sem eyða páskafríinu annars staðar en heima hjá sér. Þetta skrifaði Eva um verkefnið:

,,Páskarnir eru ekki bara súkkulaðiegg. Ég vildi nota þetta tækifæri til að börnin gætu sýnt velvild á skapandi hátt…að búa til póstkort frá grunni var málið! Ég vildi að börnin myndu hugsa um þá sem þurftu að eyða páskafríinu að heiman, hugsa um hvað væri hægt að segja til að gleðja þau eða einfaldlega senda kveðjur og teikna mynd. Svo var smá lærdómur í þessu líka en þau þurftu að læra að skrifa heimilisfang. Ég valdi tvo staði fyrir afhendingu. “Barnadeild Hringsins í Reykjavík” og “Hjúkrunarheimilið Lundur”. Öll verkefni í Frístund eru val og ansi margir sóttu í verkefnið.”

Glæsilegt og hjartnæmt verkefni og gaman að sjá hvað krakkarnir höfðu mikinn áhuga.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR