16. maí, 2025

Skólablaðið Varðan og fleira til

Eins og hefð er fyrir þá er skólablaðið Varðan gefið út og selt á árshátíð skólans. Færri fengu eintak en vildu á árshátíðinni en verið er að prenta fleiri eintök. Ef einhver vill panta eintak af Vörðunni má senda tölvupóst á fjola@laugaland.is. Við mælum eindregið með því að þið splæsið í eintak, blaðið er sneisafullt af hágæða efni!

Búið er að stofna tvö ný myndaalbúm á heimasíðunni, eitt fyrir sumarskemmtun yngsta stigs í boði nemendaráðs og annað fyrir árshátíðina. Myndaalbúmin má nálgast hér.

Hafið það gott um helgina!

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR