6. maí, 2025

Skólahreysti 2025

Í dag keppti lið Laugalandsskóla í Skólahreysti. Keppendur í ár voru:

Sævar Hörður Sverrisson, upphífingar og dýfur.

Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir, armbeygjur og hreystigreip.

Helga Fjóla Erlendsdóttir, hraðabraut.

Víkingur Almar Árnason, hraðabraut.

Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Viktor Logi Borgþórsson, varamenn.

Keppendur stóðu sig mjög vel í dag og lentu í 4. – 5. sæti og voru skólanum til sóma. Stuðningsliðið stóð sig líka feikna vel, en nemendur 7. – 10. bekkjar fóru með keppendum og horfðu á. Nemendur 1. – 6. bekkjar sameinuðust í matsal skólans og horfðu á keppnina í beinni útsendingu. Mikið stuð og svakaleg stemming var á báðum stöðum og margir bleikklæddir til stuðnings Laugalandsskóla.

Áfram Laugalandsskóli!

Fleiri myndir koma inn síðar.

Hér má sjá stutt myndband frá áhorfendapartýinu í skólanum.

Frábæru keppendurnir okkar!

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR