Mánudaginn 19. maí fór 8. bekkur, ásamt Guðbjörgu og Jónasi, í Þórsmörk.
Lagt var af stað fljótlega eftir skólabyrjun og fyrsta stopp var við Stakkholtsgjá þar sem var vaðið inn að fossi. Því miður týndi einn nemandi símanum þar og ekki gafst tími til að leita að honum. Síðan var haldið í Bása og þegar þangað var komið var skellt í nokkrar samlokur enda allir hungraðir eftir gönguna inn í Stakkholtsgjá. Krakkarnir fengu svo frítíma (sem þeir notuðu í spil og að vaða) til klukkan 16:00 en þá hófst „Jónasargangan“. Í miðjum frítímanum var reyndar ekta þrjú-kaffi með súkkulaðikökum og kókómjólk því Guðbjörg var svo heppin að verja afmælisdeginum sínum með sínum uppáhaldsnemendum. „Jónasargangan“ fór þannig fram að þrammað var í einni halarófu af stað í átt að Fimmvörðuhálsi, markmiðið var reyndar ekki að ganga alla 24 km heldur komast allavegana upp Kattahryggina. Þau fóru létt með það og sumir gengu upp á heiðina. Upp úr sex var farið að grilla. Skólinn skaffaði pylsur en nemendur gátu tekið með sér annan kost á grillið ef það hentaði þeim betur. Allir hjálpuðust að við matinn og þótt pylsurnar hafi verið ágætar þá voru marineruðu kjötbitarnir vægast sagt girnilegri. Kvöldið var svo ljómandi skemmtilegt þar sem krakkarnir léku frjálst í alls kyns leikjum, tóku í ýmis spil, fóru í kubb og Varúlf svo eitthvað sé nefnt. Allir lögðust dauðþreyttir á koddann sinn og um tólfleytið var komin ró og friður.
Daginn eftir var ræst klukkan 8:30 þar sem morgunmatur og frágangur á skálanum beið. Klukkan 10 kom bíllinn að sækja okkur. Fyrst skutlaði hann þeim yfir í Langadalinn og skildi þau eftir þar. Þau löbbuðu yfir í Húsadal með tveimur viðkomustöðum, Snorraríki og Sönghelli. Nokkrir nemendur klifruðu næstum upp í Snorraríki en enginn brast í söng í Sönghelli, þrátt fyrir talsverða hvatningu. Fyllt var á vatnsbrúsana í fossmigunni í Sönghelli og tekið bekkjarmynd Þegar komið var í Húsadal voru allir að kafna úr hita svo þau fóru að vaða í andapollinum, sem reyndar var ekkert skítugur eftir veturinn. Síðan var það hádegisnesti og eftir það var farið aftur í Stakkholtsgjá að gera aðra tilraun til að leita að símanum. Kraftaverkin gerast og síminn fannst!
Að lokum fór hópurinn í Nauthúsagil þar sem var vaðið inn eftir ánni, milli klettana, klifrað í kaðli upp foss og barið svo loksins þennan gullfallega foss sem er inni í gilbotninum augum. Lent var á Laugalandi kl. 14:50, allir virkilega sælir og glaðir með vel heppnað skólaferðalag.