14. maí, 2025

Upplestrarkeppnin í Vestmannaeyjum

Þriðjudaginn 13. maí var upplestrarkeppnin Röddin haldin í Vestmannaeyjum. Nemendur 7. bekkjar, ásamt Fjólu, Sóleyju og Hákoni (sem lenti í 2. sæti í fyrra) fóru saman til Vestmannaeyja og gerðu sér glaðan dag. Veðrið lék við mannskapinn og fóru þau saman í hádegismat á Vöruhúsinu, sprönguðu og kíktu í Herjólfsdalinn.

Aðal mál dagsins var þó upplestrarkeppnin þar sem Anna Sigríður Erlendsdóttir og Tinna Lind Brynjólfsdóttir áttu að keppa fyrir hönd Laugalandsskóla. Stelpurnar voru skólanum til sóma og stóðu sig afskaplega vel. Hápunktur dagsins var svo þegar Tinna Lind hreppti fyrsta sætið og var hún vel að því komin. Til hamingju Tinna!

Úrslit keppninnar:

  1. sæti – Tinna Lind Brynjólfsdóttir, Laugalandsskóli
  2. sæti – Hjalti Kiljan Friðriksson, Hvolsskóli
  3. sæti – Hrafnkell Darri Steinsson, Grunnskóli Vestmannaeyja

Vestmanneyingar voru höfðingjar heim að sækja, en á meðan dómarar voru að ráða ráðum sínum var boðið upp á kaffi og veitingar. Eins buðu þeir upp á tónlistaratriði á vegum tónlistarskólans þar sem Bjartey Ósk Smáradóttir spilaði á þverflautu undir spili Kitty Kovács. Inda Marý Kristjánsdóttir, nemandi Grunnskóla Vestmannaeyja, flutti svo frumsamin ljóð.

Lauglendingar voru heldur betur hressir eftir keppnina og fengu sér ís í blíðunni áður en haldið var heim á leið. Þetta var dásamlegur dagur og við erum ótrúlega stolt af okkar fólki.

Fleiri myndir frá deginum má nálgast hér.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR