Þriðjudaginn 27. maí komu formaður kvenfélagsins Einingar, Ragnhildur Ragnarsdóttir, og Þórdís Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Einingar, færandi hendi að Laugalandi. Kvenfélagið afhenti Leikskólanum á Laugalandi og Laugalandsskóla hvorum um sig fjárstyrk upp á 1.000.000kr. Jónas Bergmann Magnússon, skólastjóri Laugalandsskóla, og Sigrún Benediktsdóttir, leikskólastjóri Leikskólans á Laugalandi, veittu styrkjunum viðtöku.
Kvenfélagið Eining var stofnað árið 1922 og hefur verið ómetanleg stoð í samfélaginu. Kvenfélagið leggur sig fram við að styðja þá sem á þurfa og hefur Eining styrkt innviði samfélagsins í formi gjafa og fjárstyrkja fyrir hin ýmsu málefni. Nýleg dæmi eru þegar kvenfélagið stóð fyrir gróðursetningu sumarblóma á Hjúkrunarheimilinu Lundi síðasta sumar og þegar það styrkti Kvennathvarfið um 1.000.000kr fyrir stuttu. Auk þess stendur Eining fyrir hinni árlegu aðventuhátíð á Laugalandi en sú hátíð er orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra í sveitarfélaginu. Svo má ekki gleyma öllum þeim veislum sem kvenfélagið heldur utan um þar sem meðlimir þess galdra fram dýrindis kræsingar fyrir gesti. Eins og sést leggur Eining sig fram við að styrkja nærsamfélagið, sem styrkir kvenfélagið á móti.
Árið 2023 átti kvenfélagið Eining kvenfélagskonu ársins á ársfundi Sambands sunnlenskra kvenna, hana Jónu Heiðbjörtu Valdimarsdóttur. Var henni lýst sem einni af kjölfestu kvenfélagsins, alltaf jákvæð og boðin og búin að taka þátt og vera með. Það má einmitt segja að kvenfélögin séu kjölfesta samfélagsins, alltaf tilbúin að aðstoða og stuðla að vellíðan íbúa samfélagsins. Það er einmitt það sem kvenfélagið Eining gerir fyrir okkar samfélag.
Það eru bjartir tímar framundan á Laugalandi og ýmsar áætlanir í bígerð. Má þar nefna stækkun og endurbætur skólahúsnæðisins sem og fjárfestingar í nýjum tölvubúnaði hjá grunnskólanum. Leikskólinn á Laugalandi hefur nú þegar stækkað en húsnæðinu var breytt og þriðja leikskóladeildin tekin í notkun á vorönn. Nemendum fjölgar jafnt og þétt í báðum stofnunum og því mikilvægt að huga reglulega að endurbótum og tryggja að umhverfi og aðstaða sé upp á sitt besta.
Undanfarin misseri hefur útikennsla haft stórt vægi í skólastarfi beggja skóla. Krakkarnir hafa fengið fræðslu um skólalóðina og nærumhverfið og hafa unnið ýmis verkefni sem tengjast umhirðu og umhverfi. Í útikennslunni hafa börnin verið dugleg að snyrta lóðina, gróðursetja, búa til göngustíga, bæta aðgengi og almenna ásýnd. Nemendur og starfsfólk hafa sýnt mikinn metnað í að koma skólalóðinni okkar og nærumhverfi í fyrirmyndar ástand. Leikskólinn hefur ákveðið að nota styrkinn frá Einingu til kaupa á gróðurhúsi til þess að efla það starf enn frekar.
Við erum óendanlega þakklát fyrir þennan styrk sem mun svo sannarlega nýtast til góðra hluta. Takk kærlega fyrir okkur kvenfélagið Eining!