Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

28. febrúar, 2026

Árshátíð og Kardemommubærinn 5. mars

Nú styttist óðum í árshátíð skólans en hápunktur hennar verður frumsýning á Kardemommubænum, sem nemendur hafa æft af miklu kappi undir stjórn Bærings J. Guðmundssonar og Dagnýjar Rósar Stefánsdóttur, starfsmanna skólans síðustu vikur.

Leikritið verður sýnt í íþróttahúsinu á Laugalandi fimmtudaginn 5. mars klukkan 17:00. Þar eru allir foreldrar og aðstandendur nemenda velkomnir. Mikil spenna er í hópnum að stíga á svið og sýna þetta skemmtilega leikrit.

Leikritið gerist í litlum, friðsælum bæ sem heitir Kardemommubær, þar sem allir þekkjast og reyna að lifa eftir einfaldri reglu. Í bænum búa ýmsar skemmtilegar persónur eins og bakarinn, sporvagnsstjórinn, lögregluþjónninn Bastían og fleiri. Sagan snýst þó mest um ræningjana þrjá eða þá Kasper, Jesper og Jónatan. Þeir búa uppi í fjalli ásamt ljóninu sínu og reyna stundum að ræna mat og hluti úr bænum en eru í raun frekar góðhjartaðir og klaufskir.

Nemendur að æfa sig fyrir leikritið.

Leiksviðið verður mjög flott og skemmtilegt.

Hér má sjá hvaða nemendur fara með aðalhlutverkin í leikritinu.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is