Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

10. mars, 2026

Glæsilegt skólablað 9. bekkjar

Á hverju ári gefur 9. bekkur út skólablaðið „Vörðuna” undir ritstjórn kennara. Síðustu ár hefur Fjóla Kristín Blandon séð um verkið en í ár tóku Marta og Steinunn við ritstjórninni.

Í Vörðunni má sjá alls kyns myndir frá skólalífinu, nemendur í flestum bekkjum senda frá sér skemmtileg verkefni eða teikningar í skólablaðið, viðtöl við ýmsa einstaklinga og fá lesendur að kynnast nemendum 9. bekkjar enn frekar.

Skólablaðið er skemmtilegt verkefni innan skólans þar sem nemendur læra að vinna saman, að skrifa fréttir og taka viðtöl. Einnig fá nemendur tækifæri til þess að stíga út fyrir þægindarammann sinn með því að hringja í styrktaraðila og selja auglýsingar í blaðið og selja blaðið sjálft á árshátíð skólans.

Hákon Þór Kristinsson og Guðný Lilja Pálmadóttir, nemendur í 9. bekk með glæsilega skólablaðið, sem var að koma út í tengslum við árshátíð skólans 5. mars.

Efnið í blaðinu er mjög fjölbreytt og skemmtilegt.

Blaðið var meðal annars fjármagnað með auglýsingasölu og tókst það vel.

Skemmtileg síða úr blaðinu.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is