Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

25. mars, 2026

Margrét Harpa heimsótti nemendur

Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi á bænum Lambhaga og sveitarstjórnarfulltrúi í sveitarstjórn Rangárþings ytra var gestur nemenda í tíma í félagsmálum þriðjudaginn 24. mars. Margrét Harpa sagði frá störfum sínum, sem bóndi, auk þess að fjalla um sveitarstjórnarmálin og segja frá þeim störfum, sem hún gegnir þar. Nemendur undirbjuggu líka heimsóknina með nokkrum spurningum til Margrétar Hörpu, sem hún svaraði öllum skýrt og skilmerkilega.

Mikil ánægja var með heimsókn Margrétar og þakkaði hún líka nemendum vel fyrir móttökurnar.

Margrét Harpa með nemendum í félagsmálum, sem er valfag á efsta stigi skólans. Þannig vildi til að það voru bara stelpur í tímanum í þetta skipti.

Margrét Harpa er m.a. varaoddviti Rangárþings ytra og svo situr hún í fjölmörgum ráðum og nefndum sveitarfélagsins.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is