Hið árlega páskabingó foreldrafélags Laugalandsskóla verður haldið í íþróttasal skólans föstudaginn 27. mars klukkan 19:00. Fjöldi glæsilegra vinninga. Spjaldið kostar 500 kr. Nemendafélag skólans sér um sjoppuna. Enginn posi verður á staðnum.

Bingóið fer fram föstudaginn 27. mars klukkan 19:00 þar sem allir eru hjartanlega velkomnir.