Spennan er nú að ná hámarki hjá nemendum og starfsfólki skólans nú þegar árshátíðin verður haldin fimmtudaginn 5. mars klukkan 17:00 í íþróttahúsinu á Laugaland. Æfingar standa alla daga yfir á Kardemommubænum þar sem nemendur standa sig afskaplega vel á öllum æfingum. Reiknað er miklu fjölmenni á árshátíðina eins og alltaf þegar slíkar hátíðir eru haldnar í skólanum.

Æfingar fyrir leikritið hafa gengið mjög vel.