Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

14. apríl, 2026

Nemendur hnýta flugur af miklu kappi

Eitt af valfögum skólans á önninni eru fluguhnýtingar á elsta stigi þar sem Sóley Margeirsdóttir er kennari. Mikill áhugi er á fluguhnýtingum enda fjölmargir, sem skráðu sig í áfangann. Í lok hans verður farið út að veiða til að sannreyna nýju flugurnar og til að athuga hvort fiskurinn bíti á þær. Fluguhnýting er handverk þar sem útbúnar eru gerviflugur til fluguveiði. Á myndunum má sjá áhugasama nemendur hnýta flugur í dag, 14. apríl.

Áhugasamir nemendur

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is