Nemendur í valáfanganum Fjölmiðlun og fjölmiðlalæsi á efsta stigi fóru í skemmtilega heimsókn í dag en það var skrifstofa Ásahrepps, sem er húsnæði alveg við skólann. Á móti hópnum tóku þeir Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, Ísleifur Jónasson, oddviti og Guðmundur Einarsson, skrifstofustjóri.
Nemendur fengu góða kynningu á sveitarfélaginu, auk þess, sem samdar höfðu verið 12 spurningar, sem starfsmenn sveitarfélagsins svöruðu skýrt og greinilega.
Í dag búa um 330 manns í Ásahreppi og fjölgaði íbúum um 4% á milli áranna 2024 og 2025. Sveitarfélagið tekur þátt í um 10 byggðasamlögum og er mjög vel rekið.
Mikil ánægja var hjá þeim Valtý, Ísleifi og Guðmundi með heimsókn nemendanna og allra þeirra spurninga, sem þau höfðu með í farteskinu í heimsókninni.

Nemendurnir, ásamt þeim Valtý (t.h.), sveitarstjóra, Ísleifi oddvita og Guðmundi skrifstofustjóra.

Nemendum var boðið upp á veitingar, sem allir kunnu vel að meta.

Um 330 manns búa í Ásahreppi í dag.

Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem mun láta af störfum sveitarstjóra á næstu dögum sökum aldurs en hann hefur unnið við sveitarstjórnarmál í 32 ár.