Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

16. apríl, 2026

Frábærar hugmyndir í félagsmálum

Einn af valáföngum skólans í elstu bekkjunum er félagsmál þar sem farið er yfir ýmsar gagnlegar upplýsingar, sem tengjast félagsmálum á einn eða annan hátt. Nemendur læra til dæmis að þekkja grundvallarhugtök lýðræðis og félagsstarfs, kunna helstu fundarsköp og geta tekið virkan þátt í fundi og getað skrifað einfalda fundargerð. Einnig þurfa nemendur að þekkja hlutverk stjórnarmanna í félögum, geta samið og flutt ræðu og skipulagt einfalda viðburði eða verkefni.

Í síðasta tíma skiluðu nemendur inn verkefnum um félög, sem þeir vildu stofna og koma á legg. Var það mjög fróðlegt og skemmtilegt. Einn nemandi vildi stofna „Skapandi félag“, sem yrði félag fyrir einstaklinga, sem hafa áhuga á list, hönnun og skapandi vinnu. Annar vildi stofna „Leiklistarfélag ungmenna í Rangárvallasýslu“. Þriðji nemandinn vildi stofna „Alþjóðlegt vinafélag“ þar sem fólk frá mismunandi löndum gæti hist, kynnst og átt góðar stundir saman. Fjórði nemandinn lagði svo til að það yrði stofnað félag um „Andlega heilsu og vellíðan ungs fólks“.

Nemendur með verkefni sín í félagsmálum þar sem komið var með áhugaverðar hugmyndir um stofnun nýrra félaga.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is