Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

7. apríl, 2026

Lögreglustjórinn á Suðurlandi í heimsókn

Arndís Soffía Sigurðardóttir, settur lögreglustjóri á Suðurlandi var gestur í tíma í félagsmálum í skólanum í dag þar sem hún hitti nokkra hressa nemendur, sem tóku áfangann í vali.

Arndís Soffía sagði frá sjálfri sér og starfinu sínu en hún býr á bænum Smáratúni í Fljótshlíð þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu og lítils háttar búskap.

Nemendur undirbjuggu sig með því að búa til nokkrar spurningar fyrir Arndísi, sem hún svaraði öllum mjög vel. Mikil ánægja var með heimsóknina og þótti lögreglustjóranum ekki síður gaman að hitta nemendur eins og þeir hana.

Arndís Soffía ásamt nemendum, sem hún hitti í tíma í félagsmálum á elsta stigi skólans.

Arndís Soffía notaði m.a. töfluna til að skýra fyrir nemendum hvernig skipulagið væri hjá lögreglunni en um 120 starfsmenn vinna hjá lögregluembættinu.

Arndís Soffía hafði mjög gaman af því að hitta nemendur og svaraði öllum spurningum þeirra skýrt og greinilega.

Nemendur voru mjög áhugasamir um heimsókn Arndísar Soffíu og spurðu hana margra spurninga.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is