Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

21. apríl, 2026

Ösp Viðarsdóttir frá Rangárþingi ytra heimsótti nemendur

Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra heimsótti nemendur í upplýsingalæsi í gær, en það eru nemendur í 10. bekk skólans. Ösp sagði frá starfi sínu og svaraði fjölmörgum spurningum. Hún hefur séð um fjölbreytta viðburði hjá sveitarfélaginu eins og 17. júní og Töðugjöldin svo eitthvað sé nefnt.  Hún sér líka um heimasíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðla ásamt því að koma að ýmsum verkefnum tengdum atvinnu- og ferðamálum, nefndarstörfum og fleira.

Ösp lætur af störfum hjá Rangárþingi ytra á næstu vikum en hún er að fara að taka við rekstri ferðaþjónustu á bænum Kaldbak á Rangárvöllum þar sem hún er fædd og uppalinn.

Mikil ánægja var með heimsókn Aspar í skólann enda stóð hún sig frábærlega.

Ösp er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið DipNT gráðu í næringarvísindum og ráðgjöf frá Irish Institution of Nutrition and Health og sótt námskeið bæði í markaðssetningu á netinu og í skapandi skrifum.

Ösp Viðarsdóttir með nemendum 10. bekkjar eftir vel heppnaða heimsókn.

Ösp, sem lætur af störfum hjá Rangárþingi ytra á næstu vikum eftir farsælt starf.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is