Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

27. apríl, 2026

Regnbogafáninn blaktir við hún

Regnbogafáninn blaktir stundum við hún á fánastönginni við skólann. Fáninn er til að minna á það, sem skiptir okkur mestu máli að hér eiga allir sinn stað. Við viljum að hvert barn og hver starfsmaður finni að þau tilheyri, séu örugg og samþykkt eins og þau eru. Fjölbreytileikinn styrkir okkur og gerir skólann okkar betri. Í hjarta Laugalandsskóla er pláss fyrir alla.

Fáninn er með litríkum röndum sem táknar fjölbreytileika, jafnrétti og réttindi hinsegin fólks. Fáninn er oft kallaður „Pride-fáni“ og er eitt þekktasta táknið fyrir samkynhneigð, tvíkynhneigð, trans fólk og aðra hinsegin hópa.

Regnbogafáninn blaktir hér á fánastönginni við skólann.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is