Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands mun heimsækja Laugaland 21. maí í tilefni af 30 ára afmæli leikskólans. Þar munu leikskólabörn og starfsmenn taka vel á móti forsetanum og fylgdarliði enda búið að undirbúa heimsóknina vel. Forsetinn mun líka skoða Laugalandsskóla í fylgd nemendaráðs og svo verður sérstök skemmtidagskrá í matsal skólans þar sem frú Halla og hennar fólk munu líka borða. Mikil spenna er fyrir heimsókn forsetans hjá nemendum og starfsfólki leikskólans og grunnskólans.

Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands mun heimsækja Laugaland 21. maí í tilefni af 30 ára afmæli leikskólans. Mikil tilhlökkun er fyrir heimsókninni.

Nemendur hafa síðustu daga verið að æfa söngatriði, sem flutt verður fyrir forseta Íslands og fylgdarlið.