Nemendur í fjölmiðlavali heimsóttu Bændasamtök Íslands í dag í Borgartúni í Reykjavík. Þröstur Helgason, ritstjóri Bændablaðsins byrjaði á því að taka á móti nemendum og segja þeim allt um sögu blaðsins og stöðu þess í dag, sem er mjög sterk. Bændablaðið er vinsælasta blað á Íslandi og það mest lesna en það kemur út á hálfs mánaðar fresti. Nemendur spurðu Þröst nokkurra spurninga, sem hann svaraði greiðlega.
Eftir heimsóknina á Bændablaðið tók Stella Björk Helgadóttir, markaðsstjóri Bændasamtakanna á móti hópnum og kynnti í máli og myndum starfsemi samtakanna og svaraði spurningum. Fram kom m.a. í máli hennar að í dag eru um þrjú þúsund bændur á Íslandi og í haust verður haldin landbúnaðarsýning í Laugardalshöllinni svo eitthvað sé nefnt af því sem hún sagði.

Þröstur segir að Bændablaðinu gangi mjög vel en fimm manns vinna á ritstjórn blaðsins. Þá er vefmiðill blaðsins að eflast mjög mikið.

Þröstur Helgason, ritstjóri Bændablaðsins með nemendum

Stella Björk leysti nemendur út með þessum pokum og pennum merkum Bændasamtökunum