Nemendur skólans fóru í þrjár mismunandi vorferðir í gær þar sem fróðleikur og skemmtun var allsráðandi. Allar heppnuðust ferðirnar vel. 4. til 6. bekkur fóru til dæmis til Reykjavíkur þar sem Sjóminjasafn Íslands var heimsótt, auk Þjóðminjasafns Íslands og svo var farið í keilu. Grillað var á Klambratúni í frábæru veðri. Hér má sjá nokkrar ljósmyndir úr ferðinni.

Nemendur fengu að klæða sig í víkingaföt á Þjóðminjasafninu.

Auðvitað þurfti að mynda alla í bak og fyrir.

SS pylsur voru grillaðar í hádeginu í góða veðrinu.

Uppáklæddur og flottur nemandi skólans.

Beinagrind í Þjóðminjasafninu.

Fræðsla í Sjóminjasafni Íslands, mjög fróðlegt.

Mikið fjör var í keilunni.

Mannabein skoðuð í Þjóðminjasafninu.