Nemendur í 10. bekk voru í síðasta tíma annarinnar í heimilisfræði í gær hjá Helgu Fjólu Guðnadóttur kennara. Í áfanganum hafa nemendur lært ýmislegt fróðlegt um matreiðslu og bakstur, enda er Helga Fjóla frábær kennari.
Í síðasta tímanum bökuðu nemendur glæsilegar marenstertur og fóru létt með verkefnið. Að því loknu fengu allir að smakka og ríkti mikil ánægja hjá bæði Helgu og nemendum með útlit og bragðgæði þess, sem bakað var.

Nemendur við glæsilegu terturnar sínar.

Allir fengu að smakka og voru mjög ánægðir.

Bæring, kennari við skólann fékk að smakka og sagðist sjaldan eða aldrei hafa smakkað eins góðar kökur.