Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

13. maí, 2026

Ísólfur Gylfi sló í gegn

Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrverandi alþingismaður og sveitarstjóri var gestur í tíma hjá eldri bekkjardeildum skólans í félagsmálum í gær. Ísólfur sagði frá sjálfum sér og þeim störfum sem hann hefur sinnt, m.a. sem alþingismaður Framsóknarflokksins á Suðurlandi og svo var hann sveitarstjóri í Hrunamannahreppi og á Hvolsvelli. Ísólfur Gylfi og fjölskylda búa í dag á bænum Uppsölum í Fljótshlíð þar sem búið er að gróðursetja um 200 þúsund plöntur á síðustu 20 árum. Ísólfur er líka mikið í tónlist, auk þess að vera forseti Rótarýklúbbs Rangæinga svo eitthvað sé nefnt. Nemendur voru mjög ánægðir með heimsókn Ísólfs Gylfa og sögðu hann hafa farið á kostum.

Ísólfur Gylfi, ásamt nemendum í félagsmálatíma þriðjudaginn 12. maí.

Ísólfur Gylfi kom víða við í framsögu sinni og sagði m.a. að uppáhaldsstaðurinn sinn í heiminum væri Ísland en hann hefur ferðast til fjölda landa í gegnum árin.

Nemendur voru mjög duglegir að spyrja Ísólf Gylfa alls konar spurninga.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is