Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

4. maí, 2026

Kynning á sjúkraflutningum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Nemendur í upplýsingatækni í 10. bekk fengu skemmtilega heimsókn í morgun þegar sjúkraflutningamennirnir, sem eru jafnframt hjón og heita Leó og Sara heimsóttu bekkinn. Þau kynntu starfsemina og svöruðu spurningum nemenda. Í máli þeirra kom fram að á síðasta ári voru um 700 sjúkraflutningar bara í Rangárvallasýslu en þegar Leó hóf störf 2011 voru flutningarnir í sýslunni um 120.  Starfsstöð Söru og Leós er á Hvolsvelli en þar eru fjórir sjúkraflutingamenn við störf. Alls eru þó sjúkraflutningamennirnir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands um 30 og starfsstöðvarnar eru, auk Hvolsvallar, Selfoss, Vík, Klaustur, Höfn og Vestmannaeyjar. Þegar kom að því að leyfa nemendum að skoða sjúkrabílinn fyrir utan skólann kom forgangsútkall á bláum ljósum og þurftu Leó og Sara að rjúka í útkallið.

Hjónin og sjúkraflutningamennirnir, Leó og Sara, sem heimsóttu nemendur í 10. bekk. Þau eru bæði mjög ánægð í störfum sínum.

Leó og Sara komu víða við þegar þau spjölluðum við nemendum um sjúkraflutninga og starf þeirra á sjúkrabílum en þau búa á Hvolsvelli þar sem starfsstöð þeirra er.

Sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sjá m.a. um útköll sjúkrabíla (neyðar- og forgangsflutningar), flutning sjúklinga milli heilbrigðisstofnana og aðstoð við bráð veikindi og slys á svæðinu svo eitthvað sé nefnt.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is