Nemendur í valáfanganum félagsmál fengu skemmtilega heimsókn í dag en það var Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra. Jón, sem er frá bænum Þverspyrnu í Hrunamannahreppi, sagði frá uppvaxtarárum sínum, skólagöngu sinni og störfum sínum í gegnum árin. Hann var til dæmis með lögmannsstofu í Vestmannaeyjum í 11 ár og hann hefur verið sveitarstjóri hjá þremur sveitarfélögum í 19 ár. Jón fór líka yfir helstu framkvæmdir og málefni sveitarfélagsins á kjörtímabilinu og sagði m.a. frá heilmiklum framkvæmdum á Laugalandi og byggingunum þar í sumar. Nemendur voru duglegir að spyrja Jón um ýmislegt og svaraði hann öllum spurningum vel og greinilega. Mikil ánægja var með heimsóknina.

Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra með nemendum í félagsmálum, sem hann heimsótti í dag.

Jón sagði frá því að í dag væru íbúar Rangárþings ytra alveg að nálgast tvö þúsund.

Nemendur spurðu Jón fjölmargra spurninga.