Það er búið að vera mikið fjör í skólanum í dag því hefðbundin kennsla var brotin upp og í stað þess fóru nemendur út í ýmsa leiki á stöðvum en um var að ræða „Fánaleikana 2026“. Skólanum var skipt upp í lið og fékk hvert lið heiti lands og fór á milli stöðva til að keppa í hinum ýmsu greinum. Til dæmis var keppt í stígvélakasti og golfkennsla fór fram á gervigrasvellinum. Í hádeginu voru svo veitt glæsileg verðlaun en verðlaunin fyrir bestu liðsheildina fékk lið Venesúela. Stigahæsta lið dagsins var Argentína og jafnt var í kjörinu um jákvæðasta leiðtogann í liðunum en það voru þau Víkingur Almar og Lea Mábil.

Víkingur Almar og Lea Mábil.

Verðlaun fyrir bestu liðsheildina fékk lið Venesúela.

Stigahæsta liðið var lið Argentínu.

Mikil og góð stemming var á „Fánaleikunum 2026“ í skólanum í dag.

Ekvador var eitt af keppnisliðum dagsins.

Stígvélakastið var jöfn og spennandi keppni.

Golfkennslan tókst einstaklega vel.

Afmælismatur var í mötuneytinu í tilefni dagsins þar sem boðið var upp á pítu með öllu, ásamt ís og skúffuköku á eftir.