September er gulur mánuður en hann er hluti af vitundarátaki sem beinir sjónum að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Markmið átaksins er meðal annars að hvetja okkur til að sýna hvert öðru umhyggju, rækta tengsl og vera óhrædd við að ræða um líðan okkar.
Guli dagurinn er hluti af átakinu og eru þá landsmenn hvattir til þess að klæðast gulu til þess að sýna stuðning og samstöðu.
Laugalandsskóli tók að sjálfsögðu þátt í átakinu og voru margir nemendur og starfsfólk klætt í gult þennan dag.

Hér má sjá fleiri myndir.






