Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

22. október, 2026

Allt er vænt sem vel er bleikt

Laugalandsskóli hélt bleika daginn að sjálfsögðu hátíðlegan til að sýna þeim sem greinst hafa með brjóstakrabbamein stuðning, sem og aðstandendum þeirra. Það var nóg um að vera í skólanum þennan dag, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.

Hér má sjá nemendur í 1. bekk með Klöru umsjónarkennara.
1. bekkur hannaði sínar eigin bleiku slaufur í tilefni dagsins!

Miðstigið fór í haustferð upp að Keldum, svo var förinni heitið í heimsókn í fjósið í Guttormshaga, þaðan í fiskeldið í Fellsmúla.

Hér má sjá fleiri myndir frá skólalífinu á bleika daginn.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is