Í síðustu viku kom Jón Pétur danskennari í heimsókn til okkar og kenndi nemendum skemmtileg spor.
Jón Pétur leggur mikið upp úr því að nemendur skemmti sér vel í dansinum og efli jákvæðan skólaanda í leiðinni. Afrakstur vikunnar var svo sýndur þegar að allir nemendur skólans, ásamt elstu tveimur árgöngum leikskólans, sameinuðust í íþróttasalnum í skemmtilegu hópefli og dansi.
Hér má sjá myndir frá dansvikunni:


































































































