29. janúar, 2025

Þorrablót 24. janúar

Þann 24. janúar, á bóndadeginum sjálfum, var haldið þorrablót í Laugalandsskóla. Lagt var mikið í blótið í ár og vegleg veisla á boðstólum fyrir nemendur og starfsmenn.

Í byrjun blóts leiddi Einar Þór, tónmenntakennari, hópsöng í salnum. Áður en borðhald hófst var 6. bekkur með kynningu á þorramat og innihaldi hans.

Síðan drógu formaður og varaformaður nemendaráðs, Elísabet Líf og Helga Fjóla, röðina í hlaðborðið.

Á meðan borðhaldinu stóð fluttu nemendur 7. bekkjar útvarpsleikrit með myndasýningu um hina kunnu Bakkabræður og stóðu þau sig afspyrnu vel.

Sá viðburður sem beðið er með mestu eftirvæntingu er að sjálfsögðu verðlaunaafhending fyrir bestu vísubotnana í Laugalandsskóla. Að venju átti dómnefnd ærið verk fyrir höndum að velja hvaða botn skar fram úr þar sem nemendur eru ógurlega flinkir að galdra fram flotta og skemmtilega botna.

Í 1.-4. bekk voru þessir botnar nefndir sem sérstaklega flottir botnar:

Það var síðan hann Ómar Snær í 1. bekk sem bar sigur úr býtum á yngsta stigi. Svona hljóðaði hans botn.

Sjálfur var Ómar á leið á þorrablót fyrir norðan svo nafni hans í 8. bekk tók við verðlaununum í hans stað.

Þessir botnar í 5. – 7. bekk þóttu sérlega efnilegir.

Það var síðan hann Dagur í 6. bekk sem þótti vera með besta botninn á miðstigi.

Í 8. – 10. bekk þóttu þessir botnar sérlega góðir.

Á elsta stigi var það síðan hún Eldey Eva sem hlaut verðlaunin fyrir besta botninn.

Margir nemendur leggja kapp á að hafa botnana fyndna og skemmtilega og eru veitt verðlaun fyrir fyndnasta botninn. Það var hann Sæmundur Ingi sem hlaut þau verðlaun.

Einn botn hlýtur síðan verðlaunin sem besti botninn í öllum skólanum og fær farandbikarinn Þorraþrælinn. Það var hún Weronika í 10. bekk sem hlaut verðlaunin í ár enda með glæsilegan vísbubotn.

Starfsmenn fá líka að spreyta sig og var það hún Dýa sem þótti vera með besta botninn, annað árið í röð!

Eins og lesendur sjá þá er Laugalandsskóli stútfullur af hagyrðingum og skemmtikröftum. Það eru nemendurnir sem gera þennan dag svo skemmtilegan og eftirminnilegan svo ekki sé minnst á galdrafólkið í eldhúsinu. Takk fyrir gott blót!

Fleiri myndir af þorrablótinu má sjá hér.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR