3. júní, 2025

Vorferðir, vordagar og annað til

Eins og aðstandendur hafa tekið eftir þá hefur verið nóg um að vera hjá krökkunum síðustu tvær vikur skólaársins. Yngsta stig og miðstig fóru í vel heppnaðar vorferðir og fengu frábært veður.

Mánudaginn 26. maí var vordagur sem gekk þannig fyrir sig að nemendur voru 80 mínútur í senn á ákveðnum stöðvum. Stöðvarnar voru útikennsla, spil og föndur og sundkeppni.

Þriðjudaginn 27. maí var stöðvadagur. Nemendum var skipt upp í 9 lið, fengu úthlutað landi og fóru svo á 9 stöðvar þar sem hver stöð var 9 mínútur. Á stöðvunum glímdu þau við þrautir og söfnuðu stigum. Stigahæsta liðið vann síðan verðlaun í lok dagsins.

Á miðvikudeginum 28. maí var tiltekt í umsjónarstofum og samverustund með umsjónarkennara.

Myndir af öllum þessum herlegheitum eru komnar á heimasíðu skólans.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR