Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

6. mars, 2026

Frábær árshátíð

Árshátíð skólans fimmtudaginn 5. mars tókst frábærlega en leikritið um Kardemommubæinn var sýnt við góðar viðtökur gesta, sem fylltu íþróttahúsið á Laugalandi.

Í hléi var sjoppa á staðnum og eftir sýninguna var hægt að kaupa þessa fínu kjúklingasúpu, sem var liður í fjáröflun fyrir 10. bekkjarferðalag í vor.

Nemendur og starfsmenn skólans hafa unnið hörðum höndum við uppsetningu leikritsins síðustu vikur en allir nemendur skólans komu að sýningunni með einum eða öðrum hætti, auk þess, sem fjölmargir starfsmenn komu að æfinga ferlinu.  Leikstjórarnir voru þau Bæring J. Guðmundsson og Dagný Rós Stefánsdóttir, starfsmenn skólans, sem stóðu sig frábærlega. Undirleikari á píanóið er Einar Þór Guðmundsson.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á sýningunni.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is