Vorstemming er ríkjandi í skólanum þessa daga enda nemendur duglegir að leika sér úti og njóta góða veðursins. Sumardagurinn fyrsti er reyndar ekki fyrr en 23. apríl en það er frábært að fá „Vorið“ svona snemma. Vorið er jú tíminn þegar náttúran vaknar aftur eftir veturinn enda verða dagarnir lengri og bjartari.
Mörgum nemendum finnst gaman að kríta á stéttarnar við skólann og er það einn af vorboðunum.

Fallegt sólarlag inn um grénitré við skólann í morgun, 12. mars.