Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

17. mars, 2026

Guðnafoss við skólann

Þó hann láta ekki mikið yfir sér þá er foss við Laugalandsskóla, sem heitir Guðnafoss. Nokkrir stoltir nemendur fór að fossinum nýlega með nýjum starfsmanni til að sýna viðkomandi herlegheitin. Olgeir Engilbertsson í Nefsholti veit allt um fossinn.

„Já, fossinn heitir Guðnafoss eftir Guðna Vigfússyni, sem var bóndi í Austurbænum í Nefsholti frá 1915 til 1936 að undanskildum þremur árum. Guðni var framfarasinnaður og hann gaf Ungmennafélaginu Ingólfi 300 fermetra blett úr jörðinni fyrir sundlaug þar sem lítil tíu til tólf metra hringlaga hlaðin laug úr kekkjum var og í hana leitt heitt vatn úr Nefsholtslaugunum. Guðni lést 1936 og eignaðist þá Holtahreppur jörðina Nefsholt 2 . Vatnið í þessum skurði er af svæðinu hér fyri innan tún og svæðinu norðan bæjarins Götu og eru þetta upptök Steinslækjar, sem rennur undir Hringveginn við Áshól í Ásahreppi“, segir Olgeir og bætir við að Guðni hafi verið dálítið sérstæður maður og nokkrar vísur hans hafa farið á flug fyrir óhefðbundið form svo sem;

Komdu sæl mín elskuleg

ef ég mætti svo að orði kveða

því af hjarta elska ég þig

hvort ég má eða ekki

Nokkrir stoltir og ánægðir nemendur við Guðnafoss.

Við skólann er líka fallegur skógarlundur, sem nemendur eru duglegir að leika sér í.

Fossinn heitir Guðnafoss eftir Guðna Vigfússyni, sem var bóndi í Austurbænum í Nefsholti frá 1915 til 1936 að undanskildum þremur árum.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is