Ljósmyndakeppnin „Rangárþing með augum barna“ er nú haldin í tilefni Barnamenningardaga á Suðurlandi, sem verða dagana 22. til 26. apríl næstkomandi.
Á þessum dögumverður sérstök áhersla lögð á barnamenningu, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland. Einn af viðburðunum er ljósmyndasamkeppni en keppnin er opin börnum og ungmennum á Suðurlandi. Keppt er í þremur aldursflokkum eða 5 til 8 ára, 9 til 12 ára og 13 til 17 ára. Hver þátttakandi má senda inn allt að 3 ljósmyndir.
Tæknileg atriði
Myndir skulu vera stafrænar og í góðum gæðum
Mælt er með JPG eða PNG formati.
Lágmarksupplausn: ca. 2000 px á lengri hlið ef mögulegt er
Skilafrestur er 12. apríl á barnamenning.emstra.is
Bannað er að nota gervigreind til að búa til eða breyta myndum
Efni ljósmynda
Myndirnar skulu tengjast Suðurlandi eða heimabyggð þátttakanda.
Myndirnar mega sýna t.d. náttúru, daglegt líf, fólk, staði, leik, menningu eða eitthvað sem fangar athygli ljósmyndarans.