Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

27. mars, 2026

Skellt í bingó fyrir 1. – 6. bekk

Þar sem 7. til 10. bekkur er í fríi í dag vegna sameiginlegrar árshátíðar grunnskólanna á svæðinu á Hvolsvelli í gærkvöldi var skellt í páskabingó með nemendum í 1. til 6. bekk í morgun. Bingóið tókst einstaklega vel en Bæring Jón kennari sá um að lesa upp tölurnar og stjórna bingóinu.

Nemendur í 1. til 6. bekk mættu á bingóið og fara nú í páskafrí eftir skóladaginn, eins og aðrir nemendur og starfsmenn skólans.

Glæsileg páskaegg og súkklaði, sem hægt var að vinna í bingóinu.

Mikil spenna var í bingóinu enda vildu allir vinna páskaegg.

Kampakátir sigurvegarar

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is