Sigríður Harpa Jónsdóttir, nýráðinn byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings var gestur í tíma I upplýsingatækni hjá 10. bekk í morgun. Hún sagði frá starfi sínu og þeim áskorun, sem eru fram undan þar, auk þess að svara spurningum nemenda.
Harpa eins og hún er alltaf kölluð er fædd og uppalin á Hellu en er búsett á Hvolsvelli. Sem byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings sinnir hún byggðaþróunarverkefnum fyrir bæði Rangárþing ytra og Rangárþing eystra. Hún er með starfsstöð á skrifstofu Rangárþings ytra í Miðjunni á Hellu.
Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar. Auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðarþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við Rangárþing ytra og Rangárþing eystra og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS).

Harpa, nýr byggðaþróunarfulltrúi, sem mætti í tíma í upplýsingatækni í 10. bekk.

Mikil ánægja var með heimsókn Hörpu

Nemendur ásamt Hörpu en þau voru mjög dugleg að spyrja hana allskonar spurninga um nýja starfið hennar. Hún er með netfangið harpa@ry.is