Benedikt Benediktsson, eða Bensi eins og hann er alltaf kallaður og er framleiðslustjóri hjá SS (Sláturfélagi Suðurlands) var gestur í tíma í félagsmálum í dag. Bensi sagði frá starfsemi fyrirtækisins og svaraði fjölmörgum spurningum nemenda. Í máli hans kom m.a. fram að í dag vinna um 170 starfsmenn hjá fyrirtækinu á Hvolsvelli og um 30 manns á Selfossi. Hann sagði líka frá því að SS væri með um 300 vörur í framleiðslu og að alltaf væri verið að setja eitthvað af nýjum vörum á markað. SS pylsur eru langvinsælasta vara fyrirtækisins en svo eru aðrar vörur, sem skora mjög hátt. Fyrirtækið var stofnað í janúar 1907 og fagnar því 120 ára afmæli á næsta ári. Mikil ánægja var með heimsókn Bensa, sem leysti nemendur út með nokkrum vörum frá SS, sem þeir fóru með heim til að leyfa fjölskyldum sínum að smakka með sér.

Bensi með nemendum í félagsmálum

Mikil ánægja var með heimsókn Bensa í tímann

Fram kom í máli Bensa að í dag vinna um 170 manns hjá SS á Hvolsvelli og um 30 á Selfossi