Samúel Örn Erlingsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður hjá Ríkisútvarpinu og núverandi íbúi á Gaddstöðum rétt við Hellu heimsótti nemendur í valáfanganum í fjölmiðlafræði í vikunni. Samúel Örn sagði frá 26 ára starfsferli sínum hjá RÚV og öðrum spennandi verkefnum, sem hann hefur unnið við. Hann er uppalinn á Hellu en hefur búið á nokkrum stöðum í gegnum ævina. Hann starfaði m.a. í Laugalandsskóla enda hefur hann komið að kennslu í nokkrum skólum í gegnum árin. Samúel Örn syngur í tveimur kórum, Karlakór Rangæinga og Karlakór Reykjavíkur. Hann er líka mikill hestamaður og er m.a. leiðsögumaður hjá Eldhestum á sumrin í Þórsmörk svo eitthvað sé nefnt.

amúel Örn með nemendum í fjölmiðlafræðinni, sem voru duglegir að spyrja hann alls konar spurninga.

Samúel Örn segist eiga mörg áhugamál en hestamennskan sé þar efst á lista, auk þess að fylgjast mikið með körfubolta.

Samúel Örn segist eiga mörg áhugamál en hestamennskan sé þar efst á lista, auk þess að fylgjast mikið með körfubolta.

Það urðu fagnaðarfundir þegar þeir Jónas Bergmann, skólastjóri og Samúel Örn hittust í skólanum.