Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

29. apríl, 2026

Skemmtileg heimsókn frá Sunnlenska.is

Jóhanna S. Hannesdóttir, annar eigandi fréttavefjarins Sunnlenska.is heimsótti nemendur í fjölmiðlavali í dag og sagði frá vefnum, sem hún og maður hennar, Guðmundur Karl Sigurdórsson eiga og reka saman.

Þau opnuðu vefinn 8. apríl 2010 og hefur hann verið í stöðugum vexti síðan. Jóhanna skrifar mest fréttir á vefinn en Guðmundur skrifar allar íþróttafréttir og sitthvað annað en hann vinnur annars fullt starf hjá Sjóvá á Selfossi. Jóhanna sagði að fimm til tíu fréttir væru settar á vefinn daglega og að heimsóknirnar á vefinn væru allt frá fimm þúsund til tíu þúsund á sólarhring. Nemendur spurðu hana nokkurra spurninga og voru mjög ánægðir með heimsóknina enda Jóhanna hress og skemmtileg en hún er þjóðfræðingur að mennt.

Jóhanna hjá Sunnlenska.is með nemendum í fjölmiðlavali í tíma dagsins

Jóhanna segir að vefur þeirra hjóna gangi mjög vel enda vinsæll vefur

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is