Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

5. maí, 2026

Útbjuggu glæsilegar tröppur í smíðatíma

Undanfarin tvö ár hafa Marta og Bæring, kennarar við skólann verið með útikennslu þar sem meðal annars hefur verið unnið að því að byggja upp göngustíga, smíða tröppur og grisja skóginn í kring um Laugaland. Í smíðatíma í vikunni var ákveðið að 6. bekkur myndi halda áfram með verk, sem enn átti eftir að klára. Á myndinni má sjá afraksturinn, glæsilegar tröppur, sem nemendur bjuggu til fylltu upp með kurli. Virkilega vel að verki staðið.

Glæsilega að verki staðið hjá nemendum 6. bekkjar.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is